Bókanir og verð
Við sjáum um skráningar á bókunarsíðum, höldum bókunardagatölum samstilltum og stillum verð eftir árstíma og eftirspurn.

Við sjáum um bókanir, gestasamskipti, þrif og eftirlit svo þú þurfir ekki að sinna útleigunni frá degi til dags.
Fá tilboð í umsjónÓskuldbindandi. Sendu okkur staðsetningu eða slóð á eignina.

Minna umstang.
Meiri tími fyrir þig.
Þú þarft ekki að svara gestum á kvöldin eða finna einhvern í þrif fyrir næstu komu. Við höldum utan um útleiguna og þú færð yfirsýn yfir tekjur, kostnað og það sem þarf að gera við eignina.
Við sjáum um skráningar á bókunarsíðum, höldum bókunardagatölum samstilltum og stillum verð eftir árstíma og eftirspurn.
Við svörum spurningum gesta, sendum komuleiðbeiningar og skipuleggjum þrif og þvott. Við fylgjum eftir að eignin sé tilbúin fyrir næstu gesti.
Við fylgjumst með ástandi eignarinnar og skipuleggjum viðhald í samráði við þig. Þú færð skýrt yfirlit yfir reksturinn og veist alltaf við hvern þú átt að tala.


Við sjáum um ljósmyndun, kynningartexta og uppsetningu á bókunarsíðum. Við förum líka yfir verðlagningu, leiðbeiningar fyrir gesti og verklag við þrif og eftirlit.
Þessi undirbúningur er innifalinn í samstarfinu, án sérstaks stofngjalds. Við skilgreinum umfangið í tilboðinu. Húsgögn, framkvæmdir og innkaup fyrir eignina eru greidd sérstaklega og samþykkt af þér áður en ráðist er í þau.
Viltu að tekjurnar þínar fylgi bókunum eða viltu vita fyrirfram hvað þú færð greitt? Við skoðum eignina og rekstrartölurnar áður en við gerum þér tilboð.
Þú færð tekjurnar af útleigunni að frádregnum kostnaði og þóknun okkar. Umsjónarþóknun er að jafnaði 25% af gistingartekjum eftir gjöld bókunarsíðna. Fyrir eignir þar sem umfang og rekstur leyfa getur hún farið niður í 20%.
Við semjum um árlegt tekjumarkmið fyrir þig. Náist það ekki lækkum við eða fellum niður þóknun okkar samkvæmt samningi.
Lækkunin takmarkast við umsjónarþóknun okkar fyrir tímabilið. Þetta er ekki trygging fyrir ákveðnum heildartekjum. Markmið, kostnaðarliðir og uppgjör eru skilgreind í tilboðinu.
Þóknun er án VSK. Þrif, þvottur og annar eignakostnaður greiðast sérstaklega. Tilboðið sýnir hvað er innifalið og hvað kemur til viðbótar.
Fá tilboð í umsjónVið semjum um fasta greiðslu til þín í hverjum mánuði, óháð því hversu margar nætur eignin er bókuð. Þessi leið er í boði fyrir eignir sem standast mat okkar á tekjum og rekstrarkostnaði.
Fasta greiðslan og tekjuviðmiðið eru tvær aðskildar fjárhæðir. Í tilboðinu kemur fram hvernig tekjur eru reiknaðar, hver greiðir hvaða kostnað og hvaða skilyrði gilda.
Kanna fasta greiðslu

Við heitum Eygló og María og höldum utan um umsjón eignanna hjá Heimavöku.
Þú ert í beinu sambandi við okkur. Við skipuleggjum vinnuna, fylgjum henni eftir og látum þig vita þegar eitthvað þarf að skoða eða ákveða.
Sendu okkur staðsetningu eða slóð á eignina. Við ræðum hvernig þú leigir hana út í dag og hvað þú vilt fá út úr samstarfinu.
Þú sérð þjónustuna, allan skilgreindan kostnað og áætlaða útborgun til þín. Við förum líka yfir samningstíma, eigin notkun og hvernig hægt er að ljúka samstarfinu.
Við skipuleggjum afhendingu lykla, þrif og samskipti við gesti. Ef bókanir eru þegar til staðar förum við yfir hvernig haldið verður utan um þær við skiptin.
Sendu okkur staðsetningu eða slóð á eignina og netfang eða símanúmer. Við höfum samband til að ræða eignina og hvað við getum tekið að okkur. Þú þarft ekki að taka neina ákvörðun núna.
Nei. Við tökum bæði að okkur eignir sem eru þegar í útleigu og eignir sem þarf að undirbúa. Við förum yfir hvað þarf að gera og hvaða leyfi þurfa að vera til staðar áður en útleiga hefst.
Ekkert sérstakt stofngjald er fyrir undirbúninginn sem er innifalinn í tilboðinu: ljósmyndun, kynningartexta, skráningar og skipulag útleigunnar. Ef eignin þarf húsgögn, framkvæmdir eða annan búnað ræðum við það við þig og fáum samþykki fyrir kostnaðinum fyrst.